1 min read

Hagnýting gervigreindar á Alþingi

Hagnýting gervigreindar á Alþingi

Skrifstofa Alþingis hefur gert samning við DataLab um hagnýtingu gervigreindarlausna í starfsemi skrifstofunnar. DataLab mun vinna aðgerðaáætlun um hagnýtingu gervigreindar til allt að tveggja ára, sem verður unnin á grundvelli samtala við starfsfólk skrifstofu Alþingis og rýni á ýmsum gögnum auk þess að taka tillit til nýjustu strauma á sviði upplýsingatækni og gervigreindar.

Meðfylgjandi mynd var tekin í desember sl. og sýnir þau Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra Alþingis, og Brynjólf Borgar Jónsson, framkvæmdastjóra DataLab, handsala samstarfið.

Aðgerðaáætlun um hagnýtingu gervigreindar samanstendur af stöðumati, raunhæfum markmiðum, úrbótaverkefnum og kortlagningu tækifæra til að hagnýta gervigreind.

  • Gert verður stöðumat og sett fram raunhæf markmið á lykilþáttum sem styðja við hagnýtingu gervigreindar í starfsemi skrifstofu Alþingis.
  • Skilgreind verða úrbótaverkefni sem ráðast þarf í til að ná þessum markmiðum.
  • Að lokum verða tækifæri til að hagnýta gervigreind í starfseminni skilgreind, útfærð og þeim forgangsraðað. 

Fjallað er um samstarfið á vef Alþingis.

Hér má fá ítarlegri upplýsingar um Vegvísi frá DataLab.

vegvisir_medundir@2x (1)

 

Vegvísir um hagnýtingu gervigreindar

Vegvísir um hagnýtingu gervigreindar

Framfarir á sviði gervigreindar hafa skapað tækifæri til að fela tölvum fleiri verkefni en áður. Afraksturinn er sjálfvirkni og skilvirkni og...

Read More
I. Generative AI — Spunagreind: Af hverju núna?

I. Generative AI — Spunagreind: Af hverju núna?

Vangaveltur innblásnar af nýlegum framförum á sviði Generative AI.

Read More
Vegvísir er snjallt fyrsta skref – ekki sitja eftir í rykinu

Vegvísir er snjallt fyrsta skref – ekki sitja eftir í rykinu

Íslensk fyrirtæki hafa mörg ráðist í umfangsmikla stafvæðingu undanfarin misseri. Hið sama má segja um opinberar stofnanir. Slegist er um öfluga...

Read More