Vertu klár í Copilot | Á fjórum vikum
„Vertu klár í Copilot“ er 4 vikna ráðgjafarsprettur á vegum DataLab og Origo sem miðar að því að hagnýta Copilot á skipulagðan hátt.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa sett nýtingu gervigreindar í forgang í áhersluverkefnum sóknaráætlunar 2026, með áherslu á að bæta þjónustu, auka skilvirkni og hagræða rekstri.
Samið hefur verið við DataLab um að stýra verkefninu og þróa AI lausnir í samstarfi við sveitarfélögin, með það að markmiði að fyrstu lausnirnar nýtist strax á þessu ári.
Samhliða er starfandi sérstakur samráðsvettvangur sveitarfélaganna sem mótar stefnu og forgangsröðun verkefna, þannig að nýting gervigreindar verði markviss og samræmd eins og unnt er.
Áhersla er lögð á að fram komi lausnir sem nýtist sveitarfélögum við úrlausn sameiginlegra verkefna. Þannig verða lausnir t.d. þróaðar í samstarfi við 1-2 sveitarfélög og þær síðar yfirfærðar á fleiri með tilheyrandi hagræði. Einnig er um að ræða lausnir sem eru hannaðar og þróaðar fyrir öll sveitarfélögin samtímis.
Nánar má lesa um verkefnið í frétt sem birtist á vef SSH.
Á myndinni má sjá Brynjólf Borgar Jónsson framkvæmdastjóra DataLab og Pál Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóra SSH að lokinni rafrænni undirritun samningsins á skrifstofu SSH í Hamraborginni.
„Vertu klár í Copilot“ er 4 vikna ráðgjafarsprettur á vegum DataLab og Origo sem miðar að því að hagnýta Copilot á skipulagðan hátt.
Við gerum upp árið 2024. Það var gjöfult en krefjandi. Gervigreindin er svo sannarlega komin á kortið og við erum í hringiðunni. 2025 verður enn beta.
Við vissum að árið 2023 yrði áhugavert. Hér er stiklað á stóru og fjallað um helstu atburði á seinni hluta ársins.