Klár í gervigreind?
Fram er komin ný tegund hugbúnaðar sem hugsar með mállíkönum. Við köllum það spunagreind (e. Generative AI) og blasa tækifærin við hvert sem litið...
DataLab hefur þróað mælitæki til að meta hversu tilbúin fyrirtæki og stofnanir eru til að hagnýta gervigreind í starfseminni. AI stöðumælir samanstendur af 15 spurningum og fá notendur sem svara öllum spurningunum stöðumat ásamt tillögum að næstu skrefum fyrir sinn vinnustað.
Skjáskot af spurningu 1 í AI stöðumæli DataLab
DataLab notar mælitækið í ráðgjöf, bæði í Kortlagningu tækifæra og Vegvísi. Nánar um rágjöf DataLab hér.
"Mælitækið gerir okkur kleift að taka stöðuna meðal fjölda starfsfólks í fjölbreyttum hlutverkum og að sækja til þeirra hugmyndir að hagnýtingu gervigreindar í starfseminni"
Segir Brynjólfur Borgar hjá DataLab sem sjá má á meðfylgjandi mynd.
Allt frá stofnun félagsins árið 2016 hefur DataLab lagt ríka áherslu á AI ráðgjöf samhliða framleiðslu og innleiðingu AI lausna.
"Við lítum á ráðgjöfina sem mikilvægan hlekk til að tryggja skýra forgangsröðun og að vinnustaðurinn sé tilbúinn til að taka skrefin með okkur."
Á fyrsta starfsárinu var ráðgjöfin hluti af AIaaS pakkanum en á næstu árum fór DataLab í auknum mæli að bjóða ráðgjöf sem aðskilið fyrsta skref í samstarfi. Fyrst kom Vegvísirinn, svo Kortlagning tækifæra og Hugvekjan að lokum.

DataLab hagnýtir AI stöðumæli í bæði Kortlagningu og Vegvísi. Stöðumælirinn veitir grunnupplýsingar svo hægt sé að gera stöðumat, setja fram raunhæf markmið og gera tillögur að úrbótaverkefnum á vinnustaðnum. Stöðumælirinn er einnig notaður til að safna saman og forgangsraða hugmyndum að hagnýtingu gervigreindar í starfseminni.
"Starfsfólkið veit oft best hvernig má leysa verkefnin betur og með skilvirkari hætti með aðstoð gervigreindar."
Hér má nálgast AI stöðumæli DataLab.
Fram er komin ný tegund hugbúnaðar sem hugsar með mállíkönum. Við köllum það spunagreind (e. Generative AI) og blasa tækifærin við hvert sem litið...
Í dag eru flest fyrirtæki og stofnanir á einhvers konar stafrænni vegferð, sem snýr að því að nota stafræna tækni til að færa ferla, vörur og...