1 min read

AI stöðumælir frá DataLab

AI stöðumælir frá DataLab

DataLab hefur þróað mælitæki til að meta hversu tilbúin fyrirtæki og stofnanir eru til að hagnýta gervigreind í starfseminni. AI stöðumælir samanstendur af 15 spurningum og fá notendur sem svara öllum spurningunum stöðumat ásamt tillögum að næstu skrefum fyrir sinn vinnustað. 

AI stöðumælirSkjáskot af spurningu 1 í AI stöðumæli DataLab

DataLab notar mælitækið í ráðgjöf, bæði í Kortlagningu tækifæra og Vegvísi. Nánar um rágjöf DataLab hér.

"Mælitækið gerir okkur kleift að taka stöðuna meðal fjölda starfsfólks í fjölbreyttum hlutverkum og að sækja til þeirra hugmyndir að hagnýtingu gervigreindar í starfseminni"

Segir Brynjólfur Borgar hjá DataLab sem sjá má á meðfylgjandi mynd.

 

AI ráðgjöf DataLab

Allt frá stofnun félagsins árið 2016 hefur DataLab lagt ríka áherslu á AI ráðgjöf samhliða framleiðslu og innleiðingu AI lausna.

"Við lítum á ráðgjöfina sem mikilvægan hlekk til að tryggja skýra forgangsröðun og að vinnustaðurinn sé tilbúinn til að taka skrefin með okkur."

Á fyrsta starfsárinu var ráðgjöfin hluti af AIaaS pakkanum en á næstu árum fór DataLab í auknum mæli að bjóða ráðgjöf sem aðskilið fyrsta skref í samstarfi. Fyrst kom Vegvísirinn, svo Kortlagning tækifæra og Hugvekjan að lokum.

 

VegvisirKortlagning

DataLab hagnýtir AI stöðumæli í bæði Kortlagningu og Vegvísi. Stöðumælirinn veitir grunnupplýsingar svo hægt sé að gera stöðumat, setja fram raunhæf markmið og gera tillögur að úrbótaverkefnum á vinnustaðnum. Stöðumælirinn er einnig notaður til að safna saman og forgangsraða hugmyndum að hagnýtingu gervigreindar í starfseminni.

"Starfsfólkið veit oft best hvernig má leysa verkefnin betur og með skilvirkari hætti með aðstoð gervigreindar."

 

Hér má nálgast AI stöðumæli DataLab.

 

 

 

Bláa Lónið snjallvæðist | Reynslusaga

Bláa Lónið snjallvæðist | Reynslusaga

Bláa lónið er tæknivætt fyrirtæki og rekstur allur mjög gagnadrifinn. Viktor Blöndal Pálsson segir okkur frá samstarfi við DataLab í Vegvísi.

Read More
Klár í gervigreind?

Klár í gervigreind?

Ráðgjöf DataLab um hagnýtingu gervigreindar. Vegvísir, Kortlagning tækifæra, Þarfagreining og Hugvekja. Hagnýting spunagreindar hefst á samtali.

Read More
Orka náttúrunnar: Kortlagning tækifæra fyrir hagnýtingu gervigreindar

Orka náttúrunnar: Kortlagning tækifæra fyrir hagnýtingu gervigreindar

Kortlagning tækifæra fyrir gervigreind hjá Orka náttúrunnar í samstarfi við DataLab: Hvernig ný tækni hámarkar afköst og bætir þjónustu.

Read More