Spálíkön og Spunagreind
Í hverri viku eigum við samtöl við aðila sem leita til okkar vegna mikils áhuga á að hagnýta gervigreind í starfseminni.
DataLab og Origo hafa tekið saman höndum og bjóða fjögurra vikna innleiðingarsprett sem við köllum „Vertu klár í Copilot“.
Hann miðar að því að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að finna tækifæri til hagnýtingar, gera viðeigandi öryggisráðstafanir og innleiða afmörkuð pilot verkefni.
—
DataLab hefur um árabil verið leiðandi aðili á Íslandi í hagnýtingu gervigreindar. Frá árinu 2016 hafa sérfræðingar okkar í gögnum og gervigreind aðstoðað framúrskarandi fyrirtæki og lykilstofnanir að hagnýta fjölbreyttar gervigreindarlausnir í starfsemi sinni.
.png?width=845&height=377&name=data_horiz%20(1).png)
Þessi tækni verður sífellt öflugri og er nú m.a. hægt að nýta til að leysa fjölbreytt skrifstofuverkefni sem starfsfólk leysti áður í tölvum.
Hjá Microsoft hefur gervigreindin komið fram undir heitinu Copilot og er aðgengileg öllum þeim sem þegar nýta Microsoft umhverfið. Innan teymi DataLab hafa verið gerðar ítarlegar tilraunir með þessa tækni og má með sanni segja að hún hafi komið okkur skemmtilega á óvart.
Við erum fremur kröfuhörð, enda fagfólk á þessu sviði, en það er augljóst að framfarirnar hafa líka náð til Microsoft og okkur skilst að meira sé á leiðinni.
Að okkar mati er því óhætt að hefjast handa við að hagnýta Copilot með markvissum hætti á vinnustöðum þessa lands.
Hagnýting Copilot byggir á gögnum sem geta verið viðkvæm og eru oft aðgangsstýrð. Það vill enginn ábyrgur aðili fara af stað í slíka vegferð á voninni einni saman.
Það er einfaldlega nauðsynlegt að huga að gögnum og gagnainnviðum samhliða hagnýtingu Copilot.
Og víkur þá sögunni að Origo sem hefur mikla reynslu af þróun, rekstri og innleiðingu stafrænna lausna sem þurfa að standast ýtrustu kröfur. Þar er jafnframt djúp þekking á Microsoft innviðum sem styðja hagnýtingu Copilot.
Fyrirtækin DataLab og Origo hafa nú tekið saman höndum og bjóða fjögurra vikna innleiðingarsprett sem við köllum „Vertu klár í Copilot“.

„Vertu klár í Copilot“ er hnitmiðaður fjögurra vikna innleiðingarsprettur á vegum DataLab og Origo sem miðar að því að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að finna tækifæri til hagnýtingar, gera viðeigandi öryggisráðstafanir og þróa afmörkuð pilot verkefni. Boðið er upp á þrjár leiðir — Klár, Klárari og Klárastur — sem fela í sér kortlagningu tækifæra, stöðumat á gagnaöryggi og innviðum, auk þess sem þróuð eru hagnýt tilraunaverkefni (pilots).
Margir vinnustaðir greiða þegar fyrir Copilot leyfi en nýtingin er takmörkuð og virði fjárfestingarinnar því lítið. Mikilvægt er að tækla réttu tækifærin og gera það rétt til að ávinna traust starfsfólks á tækninni. Án réttrar flokkunar gagna og aðgangsstýringa getur Copilot jafnframt skapað öryggisveikleika eða gefið rýrar niðurstöður. Þessi vegferð tryggir að fyrirtæki dragist ekki aftur úr heldur byggi á traustum grunni þar sem starfsfólk kann á tæknina og gögnin eru örugg.
Fyrirtæki geta valið þá leið sem hentar þeirra þörfum, en fjárfestingin fyrir slíkan sprett getur numið frá 1.500 til 4.750 þús.kr. eftir umfangi. Ferlið tekur aðeins einn mánuð þar sem farið er úr greiningu yfir í innleiðingu á tveimur pilot verkefnum, til dæmis í M365 Copilot eða Copilot Studio, sem skila tafarlausum árangri og skýrum vegvísi til framtíðar.
Sendu okkur línu á datalab@datalab.is eða bókaðu okkur á fund til að ræða nánar um innleiðingu Copilot og gervigreindar á þínum vinnustað.
Í hverri viku eigum við samtöl við aðila sem leita til okkar vegna mikils áhuga á að hagnýta gervigreind í starfseminni.
Fram er komin ný tegund hugbúnaðar sem hugsar með mállíkönum. Við köllum það spunagreind (e. Generative AI) og blasa tækifærin við hvert sem litið...
DataLab hefur þróað mælitæki til að meta hversu tilbúin fyrirtæki og stofnanir eru til að hagnýta gervigreind í starfseminni. AI stöðumælir...