DataLab á AI Action Summit í París
Sommet pour l'action sur l'IA var haldinn í Grand Palais í miðborg Parísar í liðinni viku. Betur þekktur sem AI Action Summit.
Hin árlega UTmessa var haldin í Hörpu í byrjun febrúar.
Þar koma saman helstu sérfræðingar og fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni, miðla þekkingu og kynna starfsemi sína.
Að þessu sinni var DataLab með bás og erindi á ráðstefnunni.
Fannar Freyr Bergmann hélt erindið 'Prófanir í heimi spunagreindar' fyrir fullum sal og vakti verðskuldaða athygli. Fannar hefur mikla reynslu af þróun hugbúnaðarlausna sem hagnýta spunagreind. Á undanförnum mánuðum hefur hann og teymi DataLab unnið að þróun skalalegra lausna til að prófa slíkar lausnir. Svið sem kallast 'AI Evals'. Erindið fjallaði einmitt um það.
Á bás DataLab á sýningarsvæðinu var líf og fjör og þar stóðu vaktina þeir Bergur og Sigurður Óli.
Fannar flytur erindi fyrir fullum sal í Hörpu
Sigurður sýnir listir sínar á bás DataLab og Bergur fylgist grannt með.
Sommet pour l'action sur l'IA var haldinn í Grand Palais í miðborg Parísar í liðinni viku. Betur þekktur sem AI Action Summit.
Vorferð DataLab var farin í síðustu viku maí. Um leið fóru hinir árlegu DataLab leikar fram.
Gott, viðburðaríkt, krefjandi og skemmtilegt ár er að baki hjá DataLab.