1 min read
Hækkum flugið | Annáll DataLab 2024
Gott, viðburðaríkt, krefjandi og skemmtilegt ár er að baki hjá DataLab.
Ingólfur Ari er kominn til starfa í teymi DataLab og er þegar á kafi í spennandi verkefnum þar sem gervigreind leikur aðalhlutverk.
Ingólfur Ari Jóhannsson er AI / ML Software Engineer hjá DataLab og sinnir hugbúnaðarþróun á sviði spunagreindar og spálíkana.
Við köllum það AI þróun.
Ingólfur er að ljúka M.Sc. námi í gervigreind frá Utrecht (Holland) og er með B.Sc. í fjármálaverkfræði frá HR. Ingólfur hóf störf hjá DataLab á síðari hluta ársins 2025, kom beint úr náminu í Hollandi.
Gefum Ingólfi orðið:
"Ég er verkfræðingstýpa að eðlisfari og legg ríka áherslu á að skilja hvernig hlutirnir virka og hvers vegna. Mér finnst mikilvægt að kafa djúpt í viðfangsefni frekar en að stoppa á yfirborðinu, það skilar bæði betri lausnum og er skemmtilegt. Sérsvið mitt í náminu er hönnun módela frá grunni, sérstaklega á sviði supervised learning og reinforcement learning.
Ég hef einnig lagt markvisst upp með að byggja upp sterka þekkingu á tungumálalíkönum og hagnýtri innleiðingu þeirra. Hjá Datalab hef ég fengið tækifæri til að vinna raunveruleg verkefni frá grunni og koma þeim alla leið í production, sem er afar dýrmæt reynsla.
Hjá Datalab leiði ég í dag nokkur verkefni sem snúa að nýtingu tungumálalíkana í raunverulegum lausnum og fylgist náið með þróun á því sviði. Nýlega hef ég unnið að þróun svokallaðra agentic / erindreka lausna, þar sem líkön taka virkan þátt í að stýra ferlum.
Til dæmis með því að afla sjálf þeirra upplýsinga sem vantar frá notanda til að leysa verkefni. Í þeim skilningi er notandinn orðinn hluti af verkfærakeðju lausnarinnar, frekar en einungis endanlegur viðtakandi.
Samhliða því höfum við þróað red-teaming lausn sem hermir eftir fjölbreyttum notendum með ólík og stundum andstæð markmið, með það að markmiði að prófa veikleika í kerfunum okkar. Sú nálgun hefur reynst gagnleg til að auka áreiðanleika og öryggi lausnanna í raunverulegum aðstæðum."
Ingó hefur svo sannarlega ekki sagt sitt síðasta í AI bransanum á Íslandi og fer hann hratt yfir, enda ekki vanþörf á.
Við bjóðum Ingó velkominn í hópinn sem nú telur 10 sérfræðinga á sviði AI þróunar og AI ráðgjafar.
Stuðið er gott og allt á fleygiferð 💃
Siggi og Ingó eru á kafi í AI þróun hjá DataLab
1 min read
Gott, viðburðaríkt, krefjandi og skemmtilegt ár er að baki hjá DataLab.
1 min read
Hin árlega UTmessa var haldin í Hörpu í byrjun febrúar.
1 min read
Vika er langur tími í gervigreind Nú er liðið meira en ár síðan spunagreindarlausnin okkar, Ari, kom fram. Við byrjuðum að skoða möguleikana í...