Bláa Lónið er eitt þekktasta vörumerki Íslands, enda eitt stærsta og farsælasta ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Auk baðlónsins í Svartsengi rekur Bláa Lónið veitingastaði og hótel og stendur þessi dægrin í mjög metnaðarfullri uppbyggingu á nýjum áfangastöðum.
Meðal annars hefur félagið þegar reist ævintýralega gisti- og baðaðstöðu í Kerlingarfjöllum og í Þjórsárdal er verið að reisa lúxushótel og böð ásamt gestastofu.
Bláa Lónið er tæknivætt fyrirtæki og rekstur allur mjög gagnadrifinn. Viktor Blöndal var ráðinn í nýtt starf sérfræðings í gervigreind hjá Bláa Lóninu um mitt ár 2025. Eitt af fyrstu verkum hans var að greina stöðu og möguleika Bláa lónsins til nýtingar gervigreindar í rekstrinum.
Viktor hefur nýtt tímann vel og segir hér frá samstarfi við DataLab, sem var fengið til að aðstoða við greininguna - með Vegvísi DataLab.
Markmið Bláa Lónsins er að nýta gögn og gervigreind til að auðvelda starfsfólki vinnu sína og fækka endurteknum rútínuverkefnum með því að sjálfvirknivæða ferla.
„Bláa Lónið sá hvert stefndi í tækninni. Það lá fyrir að fyrirtækið hefði mikil tækifæri til að nýta gervigreind í starfseminni, enda rekstur okkar mjög gagnadrifinn,“ segir Viktor.
Hvernig kom samstarfið við DataLab til?
„DataLab hélt hugvekju fyrir starfsmenn okkar um hálfu ári áður en samstarf hófst, sem kveikti mikinn áhuga. Ég var svo ráðinn um mitt síðasta ár og lá beint við að hafa samband við DataLab til að taka fyrstu skrefin, skilgreina með okkur hvaða verkefni væri skynsamlegast að ráðast í fyrst og hvaða skref þyrfti að taka“, segir Viktor.
„Þetta snýst fyrst og fremst um að auka ánægju í starfi, bæta þjónustuna og vissulega ná fram hagræðingu í rekstrinum,“ bætir Viktor við.
Sérfræðingar DataLab, ásamt Viktori, tóku hátt í 30 ítarleg viðtöl, þar sem 3-5 starfsmenn mættu í hvert viðtal. Í heild voru þetta um 100 manns sem komu í viðtal. Þessi lota tók nokkrar vikur.
Áður en viðtölin fóru fram voru haldnar nokkrar hugvekjur til undirbúnings og til að kveikja áhuga starfsmanna enn frekar og unnu Viktor og DataLab náið saman að því skrefi.
„Þetta var heilmikil vinna en okkur fannst mikilvægt að tappa af hugmyndum sem víðast úr fyrirtækinu. Vinnan gekk mjög vel fyrir sig, við skipulögðum okkur vel og gáfum öllum gott rými til að viðra sínar hugmyndir. Starfsfólkið var mjög jákvætt og áhugasamt, enda margir byrjaðir að nota AI í eigin lífi. Langflestir voru mjög spenntir fyrir því að byrja að nýta þessa tækni í verkefnum í vinnunni.“
Í Vegvísi DataLab er byrjað á stöðumati á lykilþáttum sem hafa áhrif á innleiðingu gervigreindar. Það gefur sameiginlegan skilning á stöðu mála og skapar raunhæfar væntingar til næstu skrefa.
Út frá stöðumati eru sett markmið fyrir þessa þætti og skilgreind úrbótaverkefni sem styðja við markmiðin. Samhliða eru tækifæri til að hagnýta gervigreind í starfseminni kortlögð.
„Hlutverk mitt er að leiða hagnýtingu gervigreindar hjá Bláa Lóninu. Ég tek þátt í að móta og innleiða gervigreindarstefnu fyrirtækisins og tryggi að hún skili raunverulegu virði fyrir bæði starfsmenn og viðskiptavini. Ég styð deildir við að greina tækifæri til að nýta gervigreind og samþætta lausnir við daglegan rekstur. Auk þess skipulegg ég fræðslu og vinnustofur ásamt fræðsluteymi fyrirtækisins til að efla þekkingu og hæfni starfsfólks. Ég vinn að innleiðingu lausna sem stuðla að sjálfvirknivæðingu og gagnadrifnum ákvörðunum í góðu samstarfi við tækniteymi og mannauð“ - Viktor Blöndal.
Mikill fjöldi hugmynda kom fram í vinnunni. Margar skemmtilegar hugmyndir flokkuðust undir „nice-to-have“ en aðrar snertu á raunverulegum vandamálum sem mikilvægt var að leysa úr sem fyrst.
„Svona vinna laðar ekki bara fram nýjar hugmyndir heldur staðfestir þekktar áskoranir sem mikilvægt er að bregðast við. Þær tengjast ekki allar gervigreind, en tæknigrunninum með öðrum hætti,“ útskýrir Viktor.
Fyrsta verkefnið í framhaldi af vinnunni með DataLab var að stofna sérstakt ráð, AI Council, þar sem Viktor situr ásamt átta öðrum. Í ráðinu eiga öll svið Bláa Lónsins fulltrúa og þannig næst jafnræði hvað varðar forgangsröðun verkefna.
Þessi hópur mótar stefnuna áfram, fjallar um siðferðisleg álitamál og er Viktori til stuðnings í vegferðinni.
„Við sjáum fjölmörg tækifæri til að nýta gervigreindina til aukinnar skilvirkni í okkar rekstri. Til dæmis má spara mikinn tíma við að taka út skýrslur úr þeim stafrænu gögnum sem til eru og stilla upp greiningum sem nýtast við rekstrarlegar ákvarðanir.
„Við erum líka að vinna í því að koma upp Copilot lausn þannig að starfsfólk hafi greiðan aðgang að hvers kyns upplýsingum og ferlum sem það þarf til að vinna sína vinnu,“ segir Viktor og bætir við að mikill vilji sé til að nýta tæknina til að auka ánægju gesta og að þeir fái meira út úr sinni upplifun.
Að sögn Viktors getur gervigreindin hjálpað gestum Bláa Lónsins að uppgötva fleiri vörur og þjónustu og hámarka þannig tíma sinn á Íslandi.
„Önnur hugmynd sem við erum að skoða er lausn til að greina svör úr ánægjukönnunum, ekki síst hvað varðar opnar spurningar. Þannig er hægt að fá betri mynd af þjónustuupplifun og bregðast miklu fyrr við,“ segir Viktor að lokum.
Hér hefur aðeins verið stiklað á örfáum hugmyndum sem starfsfólk Bláa Lónsins er að vinna með en það er ljóst að spennandi vegferð er fram undan.
Vinnan með Vegvísi DataLab gaf Bláa Lóninu vandaða greiningu á stöðu sinni, forgangsröðun verkefna og ramma utan um næstu skref. Starfsfólk var virkjað, hugmyndir metnar, og raunveruleg vandamál dregin fram og sett á dagskrá.
Innleiðing gervigreindar hjá Bláa Lóninu er nú vörðuð stefnu og markvissri aðgerðaáætlun en ekki handahófskenndri tilraunastarfsemi.
Ávinningurinn er meiri skilvirkni og betri upplifun – bæði fyrir starfsfólk og gesti.
Vegvísir er sérhannað ferli sem hefur mótast gegnum áralanga reynslu DataLab á íslenskum markaði.
Afurð Vegvísis er aðgerðaáætlun til 2 ára um hagnýtingu gervigreindar. Hún er unnin á grundvelli samtala við starfsfólk og rýni á ýmsum viðeigandi gögnum auk þess að taka tillit til nýjustu strauma á sviði upplýsingatækni og gervigreindar.
Tíminn er núna. Kynntu þér nánar ráðgjöf DataLab hér.